Persónuverndarstefna
Hver ber ábyrgð
Golfklúbburinn Holtagörðum ehf., kt. 590517-1120, Rauðási 2, 110 Reykjavík („Golfklúbburinn“, „við“) ber ábyrgð á þeim persónuupplýsingum sem unnið er með í bókunarkerfinu. Fyrirspurnir og beiðnir sendist á golf@golfklubburinn.is.
Stefnan gildir þegar þú bókar tíma, stofnar aðgang eða hefur samband við okkur.
Hvaða upplýsingum við söfnum
- Tengiliðaupplýsingar: nafn, netfang og símanúmer.
- Bókanir: dagsetning, tími, hermir og verð, auk nafns hóps og tengiliða ef þú skráir þá.
- Kennslubeiðnir: kennari, þjónusta og skilaboð þín til kennarans.
- Félagsaðgangur (valkvæður): kennitala, golfklúbbur, forgjöf, aðildarflokkur og vinalisti.
- Vafrakökur: aðeins þær sem þarf til að halda þér innskráðum.
Til hvers við notum upplýsingarnar
| Tilgangur | Lagagrundvöllur (6. gr. GDPR) |
|---|---|
| Taka við bókunum, senda staðfestingar og áminningar með tölvupósti og SMS | Framkvæmd samnings |
| Bókhald og reikningagerð | Lagaskylda |
| Tölfræði um viðskiptavini og notkun | Lögmætir hagsmunir |
| Skilaboð og tilboð til viðskiptavina | Lögmætir hagsmunir. Þú getur afþakkað hvenær sem er |
Tölfræði: Við greinum bókunarsögu, t.d. hversu oft og hvenær viðskiptavinir koma og hvað þeir bóka. Tilgangurinn er að bæta þjónustu, verðlagningu og opnunartíma. Greiningin nær til einstakra viðskiptavina. Við notum hana líka til að senda þér skilaboð sem eiga við þig.
Skilaboð til viðskiptavina: Hafir þú bókað hjá okkur getum við sent þér tölvupóst eða SMS um sambærilega þjónustu, t.d. boð um að halda föstum tíma á næsta tímabili. Þú getur afþakkað slík skilaboð þegar þú bókar og í hverjum skilaboðum. Afþakkir þú hættum við strax að senda þér þau og að nota upplýsingar þínar í þeim tilgangi.
Við seljum ekki persónuupplýsingar og tökum engar sjálfvirkar ákvarðanir sem hafa réttaráhrif á þig.
Hverjir fá aðgang
Við notum eftirfarandi þjónustuaðila, sem vinna upplýsingarnar eingöngu fyrir okkur samkvæmt vinnslusamningi:
| Vinnsluaðili | Hlutverk |
|---|---|
| Railway | Hýsing kerfis og gagnagrunns |
| GitHub | Geymsla dulkóðaðra afrita |
| Resend | Sending tölvupósts |
| SMS-þjónustuaðili | Sending SMS |
Sumir þessara aðila eru utan EES. Flutningur þangað byggir á EU-US Data Privacy Framework eða stöðluðum samningsskilmálum ESB.
Biðjir þú um kennslutíma fær kennarinn nafn þitt, síma, netfang og skilaboð. Vinir sem félagi velur í bókun fá tölvupóst um hana. Öðrum afhendum við ekki upplýsingar nema lög krefjist þess.
Hve lengi við geymum upplýsingar
| Gögn | Geymslutími |
|---|---|
| Félagsaðgangur | Þar til þú eyðir honum |
| Bókanir og kennslubeiðnir | 24 mánuðir frá síðasta skipti, síðan gerðar nafnlausar |
| Aðgerðaskrá kerfisins | 24 mánuðir |
| Afrit af gagnagrunni | 90 dagar |
| Afþökkun tilboða | Meðan þörf er á til að virða hana |
| Bókhaldsgögn | 7 ár, samkvæmt lögum um bókhald |
Tölfræði sem ekki er hægt að rekja til einstaklinga geymum við áfram.
Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá aðgang að upplýsingum um þig, fá þær leiðréttar, eytt eða afhentar á tölvutæku formi, og að takmarka vinnslu. Þú getur andmælt vinnslu sem byggir á lögmætum hagsmunum, þar á meðal tölfræðigreiningu. Andmælir þú markaðssetningu hættum við henni án frekari skilyrða.
Félagar geta sótt gögnin sín, afþakkað tilboð og eytt aðganginum sjálfir undir „Mín gögn“. Aðrar beiðnir sendir þú á golf@golfklubburinn.is. Við svörum innan mánaðar.
Þú getur kvartað til Persónuverndar (personuvernd.is).
Við kunnum að uppfæra þessa stefnu. Nýjasta útgáfan er ávallt birt hér.